Færsluflokkur: Tölvur og tækni

Viðtalið, sennilega stutta útgáfan

Ég held þetta sé ritskoðaða útgáfan, þar sem það er ekkert bitastætt í henni. Ótrúlegt að þetta sé stærsta og að verða öflugasta land í heimi, að fólk skuli ekki rísa upp og kollvarpa þessum steingervingum sem stjórna þarna. 

http://govne.ws/item/Interview-of-President-Obama-by-Xiang-Xi-of-Southern-Weekly

 

 

 


mbl.is Lækkaður í tign vegna viðtals við Obama
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Finna þann sem hannaði og gera hann ábyrgan.

Hvernig væri að við Íslendingar prufuðum að gera svolítið nýtt og okkur algjörlega framandi. Að gera þann sem hannaði og samþykkti þennan nýja veg í núverandi mynd ábyrgan fyrir þessu ótrúlega hönnunarhryðjuverki.

Það hefur ekki verið vani okkar að gera einn né neinn ábyrgan, hvernig væri að byrja á því?


mbl.is Ók á móti umferð í Svínahrauni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Undarleg tímasetning, tilviljun?

Hvernig stendur á að þetta er að gerast núna?

Er það algjör tilviljun. Veit það einhver.

 


mbl.is Fá bætur vegna þorskastríðs
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nú, ekki meira?

Eða á þá eftir að reikna alla auka skattana (jaðar) sem á að setja á? Og áhrifin sem þetta hefur á t.d lánin hjá þessari konu? 

Ég er bara hræddur um að allar þessar auka byrðar frá ríkinu minnki kaupmátt það mikið að atvinnulífið lamist varanlega. Og ég er ekki viss um að það séu nein lögmál sem segja að Ísland eigi að vera ríkt land...?

 

 


mbl.is Skattafrumvörp til nefndar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Eru þetta þeir sömu og gáfu okkur topp einkunn hérna um árið?

Man ekki betur en Ísland hafi verið að fá topp einkunn for öllum þessum mats fyrirtækjum, þótt það væri, eins og sjá má í dag, algjör blekking. 

Er bara nokkuð að marka þessa "sérfræðinga".


mbl.is Ísland fær lægstu einkunn
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Jæja, hvað krunkaði seðlabankinn í þessari skýrslu?

Seðlabankinn fékk frest á birtingu þessarar skýrslu, ætli einhverju hafi verið breytt eða "lagað"?

Annars kemur samdráttur ekki á óvart. AGS er að valda honum með efnahags stýringum (þvingunum) hérlendis. 


mbl.is Spá hagvexti eftir 2010
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Nei, EKKI selja hæstbjóðanda!

Sem talsmaður neytenda ætti hann ekki að tala fyrir því að Bónus verði selt hæðst bjóðanda. Það er ALLTAF þannig að neytendur borga kaupverðið í vöruhækkunum og hefur gefið ótrúlega slæma raun sér ber Síminn. Nú er komin tími til að við reynum að læra af reynslunni með einkavæðingar og stórar markaðsráðandi sölur.

Brjóta fyrirtækið upp í minni einingar og passa eignaraðild í þetta skiptið.

 

 


mbl.is Tækifæri til að auka samkeppni
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Greining, fyrir tryggingarnar þá?

Svona greining kemur eflaust til með að gagnast að einhverju leiti, ekki það sé hægt að fyrirbyggja neitt. En viðkomandi myndi þá sjálfsagt fara oftar í eftirlit.

En ætli stærsti viðskiptavinurinn gæti ekki orðið tryggingafélög sem hafna þeim sem eru með þessi gen?

 


mbl.is IE finnur erfðabreytileika sem auka líkur á krabbameini
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Stjórnmálamenn ættu ekki að skipta sér af.

Þarna tel ég að stjórnmálamenna ættu ekki að vera að segja læknum hvernig sé best að höndla málið. 

Reyndar hefur óhemju mikið breyst frá minni tíð að svona ungir krakkar séu að para sig, en ætli það séu ekki bara nýir tímar og best að fylgja þeim frekar en berjast á móti í vonlausu stríði.


mbl.is Kornungar stúlkur nota pilluna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Óhæfir yfirmenn í Bönkunum!

 Yfirmenn KB eru greinilega algjörlega óhæfir.

Að þeir skuli ekki hafa vit á að stein þegja núna þegar þetta kjafts högg kemur fram er ótrúleg mistök, og sýnir best að við fórum úr græðgi og klíkuskap í heimsku, hreina heimsku.

En það er kannski ekki við öðru að búast. Kynjakvótar og pólitík látin ráða, ekki hæfni og kunnátta.


mbl.is Segja trúnað gilda um upplýsingar
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband